sunnudagur, apríl 30, 2006

Hvar eru flær allar..?

Það er spurning sem ég ætla að svara

* Síðustu dagana hefur María verið að ganga um hafnarfjarðarbæjinn. Hún stofnaði gönguklúbb karateunnenda síðastliðinn mánudag og hefur það gengið bærilega. Þó svo að það er ekki jafnt og engin þá er hún með sínar hugmyndir sem munu efla klúbbinn. Ein hugmyndin er að nota sumarið í Hraunbyrgi og sýna túristum fallega bæjinn okkar. Ef ég þekki Maríu rétt þá hefur hún eflaust eitthvað meira í pokahorninu.

* Gamlar töskur, gömul vesti, gömul veski, gamalt hitt og þetta er það sem skýst fyrst upp í hugann minn þegar ég heyri nafnið Dagný. Hún hefur fengið grænt ljós frá ömmu sinni og notar nú allar frístundir sínar upp á háalofti hjá henni, gramsandi í kassana. Þetta grams er samt ekki tilgangslaust og hefur dagný fundið mörg fögur skópör, nokkur veski og eitt gífurlega flott blómavesti sem samkvæmt móður hennar passar mjög vel við hvíta *puffpuff* skyrtu. Markmið Dagnýjar er að ná að ganga á háhæluðum skóm í hálfan dag án þess að þjást. Við óskum henni góðs gengis.

* Hún Stína fékk samt þvílika hugljómun um daginn, hún ætlar að bjóða sig fram sem þjálfara m.fl kk í handbolta. Það er allt tilbúið og hefur hún sínar hugmyndir um hvernig skal koma körlunum upp á hærra plan t.d. breyta hvíta litnum í fh búningnum í bleikann, þar sem bleikur hefur truflandi áhrif. Kristín er hörku kvennskörungur og hún hefur allann minn stuðning .. GÆS .. get ætla skal!!

* Maaggaaa... hvað getur maður sagt. Hún er í ruglinu greiið, veit hvorki upp né niður hvað gera skal við tímann sinn í þessum prófum. "Of mikill tími, of fá próf".. það ættu allir að kannast við þetta. Í sumar finnið þið Margréti í helstu sundlaugar höfuðborgasvæðisins. Hún fann köllun sína um daginn þegar hún labbaði framhjá suðurbæjarlaug. Þrífa sundlaugar, það er náttúrulega ekkert betra en að sjá skítuga sundlaug verða að glansandi hreinni laug. Margrét ætlar sko að láta taka eftir sér í sumar, hún ætlar að verða uppgötvuð.. Gangi þér allt í haginn.

* Ásrún eins og þið ættuð að vita skráði sig í þjóðdansfélag íslands daginn eftir Peysufatadaginn. Í sumar mun hún fara á alheimsmót þjóðdansa í Honululu í Japan og hlakkar henni mjög mikið til. Því miður er hún í stökustu vandræðum með að finna nýjan þjóðbúning þar sem það eru ekki margar búðir með bleikann íslenskan búning. Næstu dagana verður Ásrún í einkakennslu í þjóðbúningasaumun og ef allt gengur upp ætti hún að vera komin með einn bleikann búning fyrir águst. Ég sendi þér allar mínar andlegu hugarsaumastrauma...

* Moi, ich, me, jeg, ég Elna Albrechtsen hef bara verið að þjálfa heilann fyrir vorprófin. Í gær var skrifuð ritgerð og ein skýrsla send til kennara. Í sumar mun ég vera að mestu leiti á Úlfljótsvatni allaveganna með Katrínu .. kannski hin 50% líka. Fótboltinn mun vera spilaður á úsu og hlaupin tekin þar líka. Ég þarf að redda mér fríi 9.júli því þá er úrslitaleikurinn í HM.

Annars var það ekki meira .. mér leiðist og er búin að lesa það sem ég nenni ... adios!
Kv. Elna