..
Ég fann kuldann stingast í mig þegar ég vaknaði í morgun. Sængin lá krumpuð á gólfinu og ofninn ískaldur því ég hafði lúðast til að slökkva á honum tvem kvöldum áður. Mamma stóð í dyragættina og horfði á mig "Eva er komin með morgunmatinn, komdu þér á lappir stelpur" sagði hún, snéri sér við og labbaði niður. Ef það er eitthvað sem fer í mig þá er það þegar heimilisfólkið skilur eftir opnar dyrnar hjá mér.
Eva var búin að leggja á borðið dýrindis brauð og álegg. Hún stóð við vaskinn og var að hita vatn fyrir te þegar ég steig inn í eldhúsið. "Mikið voðalega er hún myndarleg þessa dagana" hugsaði ég með mér og rifjaði upp daginn sem ég kom heim frá Ameríku. Ég hafði haft verulegar áhyggjur af því hvernig herbergið liti út þar sem ég ákvað að klára að pakka 10 min áður en ég fór út úr húsinu og mundi ekki hvernig ég hafði skilið eftir herbergið, bara að það var örruglega í tómu tjóni. Herbergið var fagurt, öll fötin brotin saman ofan í skúffu og búið að búa um rúmið. "Það var mikið að þú vaknar" sagði Eva. Ég brosti innra með mér og sast við eldhúsborðið, tilhlökkunin að fá að borða var skringilega mikið.
..... HAHA ég ætla að skrifa ævisögu og í henni verður allt um mínar daglegu hreyfingar!
Ég hef klárað fyrirlesturinn um queen og er núna búin að minnka heimavinnuna mína um helling!
ADIOS

<< Home