mánudagur, mars 27, 2006

Trylltir krakkar og skemmtilegheit

Vestmannaeyjarnar eru sérstakar en þó þokkalega góður staður til að vera með félagsútilegu.

Við lögðum af stað á föstudeginum frá hraunbyrgi. Ég verð að segja að Dagný er svakaleg. Stelpan mætti með 60´greiðslu útaf því að henni leiddist, allveg stókostlegt hvað þessari persónu dettur í hug. Í Þórlákshöfn rúntuðum við Katrín og Óli lítinn hring um þennan fiskibæ og var sá hringur allveg nóg til að fara í gegnum allan bæjin, lítið grei. Matur var keyptur á bensínstöð en hann fær nú ekki margar stjörnur hjá mér vegna þess að hann var einn sá versti sem ég hef smakkað ;)

Herjólfur lagði af stað 20:30 og krakkarnir fóru að hlaupa um og tryllast af spenningi. Ég ákvað að leggjast bara á gólfið undir borðin og hvíla mig aðeins, Katrín ákvað að fylgja með. Við lágum þarna í svona hálftíma hlustandi á ipod. Þegar við settumst upp voru allir krakkarnir gjörsamlega stylltir enda um 80% af þeim bullandi sjóveik.

Eftir miklar ælur ;) og huggulegheit vorum við komin til eyja þar sem við komum okkur fyrir, fengum smá að borða og skelltum okkur svo í að svæfa krakkana. Við Ds-trail og og fleiri eldri fengum sér skála 10 min frá vestmannaeyjabænum sem var allveg magnað huggulegt og æðislegt, barasta lúxus skáli :D vantaði bara heitann pott.

Laugardagsmorgun vorum við rifin upp úr pokunum við mismiklar undirtektir og skipað að klæða okkur og koma okkur út í einhvern bíl. Við keyrðum að skátaheimilið þar sem maturinn og litlu krakkarnir voru, fengum okkur í svanginn, töluðum um póstinn og fórum svo hver í sína átt. Ég, Katrín og Ásta vorum þrjár í Náttúrugripasafnið þar sem við áttum bara að labba um og spjalla við krakkana. Dagný var ein eftir með einn útlending, einn adda og marga krakka að labba um eyjuna og skoða uppgröft. Um hádegið var samt skipt .. ég, Katrín, Ásta og Dagný fengum að vera allar saman með einn bíl hjá uppgreftinum og Addi og útilendingurinn voru á safninu.
Þetta tókst vel og vorum við allveg magnaðar:
• Ég og Dagný náðum að rifja upp jarðfræðina á fullu! Hlupum um með krakkana þreytta á eftir okkur, vorum gjörsamlega að gera góða hluti ;)
• Við brutumst allar inn í skalann okkar því við héldum að hann væri læstur og við sáum opnann glugga. Komumst svo að því að hann var opinn
• Rúntuðum um Vestmannaeyjabæ eins og brjálæðingar... 2 umferðaljós og 3 hringtorg
• Fórum í sprangið og meiddumst ekkert

Eftir póstaleikinn var bara matur og smá hvíld. Þegar hvíldin var búin rákum við krakkana út og löbbuðum við Katrín, Tóti, Beggi og f...re.. y.r? útilendingurinn af stað með krakkana að skálanum okkar. Þar biðu okkur hamborgarar og fallegt sólarsetur. Krakkarnir fengu að labba heim en við Trail fengum far. Þegar klukkan var orðin um 12 fórum við trail í smá dagskrá.. því miður varð hún ekki eins og átti að vera en hún var nú samt fín. Fengum að síga úr suuubbbuuulega háan klett í myrkur .. úúúú og spranga. Árni Johnsen átti að koma í til okkar og spila, hann komst ekki en sagði í símanum að við áttum þetta inni. Fórum bara í staðin nokkur í sturtu og töluðum saman til svona 4-5 og fórum svo að sofa.

Klukkan 7:40 vaknaði ég og gat ómögulega sofnað aftur. Allir voru seinrótaðir og ekkert að gera. Ég lærði eitthvað smáveigis en ákvað frekar að fara út í göngu. Það var æðislegt, allveg logn, sólin að koma bara magnað hlýtt og notalegt. Gangan mín endaði um 2 tímum seinna við það að ég hitti Gumma súkku sem var að fara upp í skátaheimili að gera morgunmat fyrir krakkana. Þar sem engin þreyta var að angra mig stökk ég upp í bílinn og brunaði með.
Þetta gekk allt vel og komumst við harpa að því að skinka er svakalega góð við hausverk..bara skella henni á ennið og mmmmhhh.
Sunnudagurinn var annars bara rólegur, ein ganga upp á eldfell sem ég tók ekki þátt í. Fór frekar að keyra þangað á fallega bílnum hans Gumma með óla. Svo var bara tekið til á meðan krakkarnir og sumir fóru í sund.

Heimferðin gekk miklu betur og var held ég bara einn sjóveikur (ældi samt ekki). Ég svaf svona 85% af ferðina nema þegar ég fór í matsalinn að fá Begga til að kaupa mat fyrir mig og Katrínu. Hann hélt að ég og Katrín myndum ekki þora að sleikja kaðal og manaði okkur til þess, bauð okkur svo 1000kr fyrir það og voilah.. 1000kr í vasann.


Jæja þetta var skemmtilegt en ég var óbboslega þreytt! Var örruglega öööömurleg á miami fundinum þar sem ég fattaði varla hvað ég var að segja. En ég hlakka til miami :D:D:D ÞAÐ VERÐUR MAGNAÐ!!!

Kveðja elna tevuskáti ... fótboltalúði .. alles gút