föstudagur, mars 24, 2006

Indverskt biturt framfarablogg

Fyrsta lagi bitur útaf því að blogger.com er of busy fyrir bloggið mitt

jæja eins gott að þetta gerist ekki aftur
..Loksins drullaðist ég til að henda myndunum inn á veraldarvefinn. Ég held að þetta fari að koma inn á hverri stundu, örruglega komið inn þegar einhver les þetta blogg. Það er allveg óendanlega leiðinlegt hvað það tekur langan tíma fyrir myndirnar að komast inn á netið. Síðan er www.elna.shutterfly.com en ég vara við illa tektum myndum og frekar ófríðum.

"ADDING PICTURES
Your pictures are currently being transferred to Shutterfly
This window will automatically close when it is complete."


Þessi gluggi er búinn að vera opinn síðustu tvær klukkustundirnar..!

Síðustu dagar hafa verið undarlegir. Ég hef ekki náð að fatta allt sem er að gerast hjá mér, þvílík biturð og depurð sem ríkir hjá mér. Reyndar hefur það verið ágætt í dag, ætli þetta sé ekki bara álagið frá skólanum? Fékk einmitt 8 í jarðfræði og hef verið allveg skuggalega jolly út af því.

Úff svo held ég að ég þurfi að fara að skoða eyrun mín! Mörg dæmi um að ég er ekkert að heyra hvað fólk segir...!
Á einni æfingu eftir útilegu:
Björg: Elna? Nennir þú að loka hurðina?
Sú heyrnalausa: Já veistu það var fínt, svolítið kallt en allveg hugguleg stemmning og svona...
Allar stelpurnar horfðu á mig eins og ég væri fífl. Ég hélt að hún hefði sagt hvernig var um helgina


Ég giska að ég sé bara eitthvað utan við mig, það vantar eitthvað í mig... Allt kemur svo öfugt út úr mér t.d. þegar ég tala og er þreytt jafnvel bara dofin, þá gleymi ég svona 30% af orðunum sem ég ætla að segja og hugsa þau í staðin og þetta kemur bara út í köku.. skuggalegt

Fólk skilur mig ekki

Ég skil mig ekki


... HEY testið ett.. segið "WINNIE THE POOH" á ensku með indverskum hreim .. það kemur út eins og "we need to poo" Ógeðslega töff, hef hlegið mikið af þessu í dag. Fyrst í efnafræði og ensku með Röggu svo líka í strætó með Kristinu. Ég held að við höfum glatt marga þreytta námsmenn í þessari ferð

Ég held að myndirnar séu komnar á netið .. ef þið lásuð ekki þetta blogg þá verðið þið að lesa það því slóðin er einhverstaðar inn í því .. durrummdumm

Well .. thank you and come again .. *Indverskur hreimur*